Ég og mitt líf

Ef ég gæti bara lýst henni

Vafraðu um


Eldra efni

  • 2009

Tenglar

Blogg

Það sem ég vildi sagt hafa.....

29.6.2009

Of margir hnakkar

Seinnipartinn í gær fórum við Jói, Aría og Káta á Bólstað. Ætlunin var að ég yrði hérna í nokkra daga. Áður en Jói og voffarnir fóru heim, fór í sinn allra fyrsta reiðtúr með okkur Björk. Hann fór á höfðingjann hann Mósa sem er orðinn 27 vetra gamall og enn í topp formi. Ég fór á Náttfara í fyrsta skiptið í rúmt ár og hann er alltaf jafn æðislegur. Björk fór á sitt uppáhald, hann Mola. Þetta var stuttur reiðtúr en skemmtilegur. Jói fór heim rúmlega níu og ég fór að sofa uppúr ellefu.
Í dag er ég búin að vera að þrífa og bera á hnakka. 8 stykki thank you very nice!!!!. Þreif þá fyrst hátt og lágt og bar svo leðurfeiti/sápu á þá. Ég byrjaði á þessu rétt fyrir hádegi og hætti rúmlega átta í kvöld. Þá bara nennti ég ekki meira. Ég á tvo hnakka eftir og klára þá á morgun.
Á morgun ætla ég sumsé að klára þessa hnakka sem ég á eftir, stússast í Heru og fara í reiðtúr á Náttfara.
Jói kemur svo og sækir mig eftir vinnu á miðvikudag. 

Skrifað 29.6.2009 kl. 22:46 af Svandís

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.6.2009

Dýragarðurinn


Aría / ( fullu nafni Aría Madonna ) er 7 ára blendingur af border collie, íslendingi og silki terrier. Hún fæddist þann 27 apríl 2002 á Kjarnholtum í Biskupstungum. Hún er ein af 8 systkinum. Ég eignaðist hana eftir að hafa unnið í smá tíma á Kjarnholtum. Eitt af því allra skemmtilegasta sem Aría gerir er að fara með í reiðtúr, hún elskar það. Hef reyndar ekkert farið með hana í langann tíma því ég var hestlaus í vetur.
Hún er yndislegasti hundur í heimi, þótt hún taki sinn tíma í að koma þegar maður kallar á hana og er óttalegur vælukjói :)





Káta ( fullu nafni Töfra Káta Hetja ) er 2ja ára íslendingur. Hún er fædd 10 mars 2007 á Stokkseyri hjá þeim Moniku og Rúnari. Káta, eða Kátintáta eins og hún er stundum kölluð er rosalega mikið kjánaprik, alltaf að gera eitthvað sem fær mann til að hlægja, og ólíkt systur sinni henni Aríu, þá er hún allt annað en virðuleg þessi elska :) Hún fer kollhnísa og missir lappirnar og kútveltist út um allt þegar hún er að reyna að halda í við Aríu á hlaupunum. Káta er ofsalega blíð og góð og elskar börn.



Kleópatra er 9 ára skvísa sem er fædd í hesthúsinu 27 apríl 2000.


Þær Aría eiga afmæli sama dag og eru þær hinir mestu mátar.




Piper er 2 eða 3 ára ( að við höldum ) skvísa. Hún er algjört rassgat og minnir hún okkur mikið á teiknimyndakisu.



Kermit og Gormit eru litlu froskarnir okkar. Þeir eru af tegundinn White Tree frog.


Freyja frá Stapa er fyrsti hesturinn minn.Hún er jarpskjótt, stjörnótt.  Ég fekk hana í fermingargjöf 5 apríl 1995 þegar hún var 2ja vetra. Í dag er hún 16 vetra og hefur hún reynst mér mikill vinur :)
Hún er yndisleg frekjudolla, pínulítil krúttibolla :)



Náttfari frá Lækjarskógum er uppáhaldið mitt. Hann er gæðingur frá náttúrunnar hendi og algjör kelubangsi. Hann er 11 vetra. Ég keypti hann þegar hann var 3ja vetra. Hann er brúnlitföróttur, en það er sjaldgæfur litur og hestar sem bera þennan lit skipta um lit 3-4 sinnum á ári.

Mars



Apríl



Mai



Júní



júlí



ágúst



febrúar



Hera frá Bólstað er úr minni ræktun. Hún er fædd 14 mai 2006 undan Glampa frá Vatnsleysu og Kráku frá Bólstað.  Miklar vonir eru bundnar við þessa skvísu.

Fæðingardagurinn 14 mai 2006



Mars 2007



Apríl 2007



Júní 2007



Júlí 2007



Mai 2008



Ágúst 2008



Mai 2009



Júní 2009





Skrifað 25.6.2009 kl. 18:11 af Svandís

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.6.2009

Frábærar fréttir :)

FYRSTA FÆRSLAN

14 apríl byrjaði ég í Einkaþjálfaraskóla World Class. Þetta var rosalega skemmtilegur skóli og frábært fólk sem var með mér í bekknum. Við tókum prófið síðasta laugardag ( 20 júní ) og úff það var strembið. 25 blaðsíðna próf sem samanstóð af líffærafræði, lífeðlisfræði, næringarfræði, prógrammagerð, þjálffræði, skyndihjálp og ég man ekki einu sinni hverju öðru og fengum við 4 klukkutíma til að taka það. Ég persónulega hefði viljað fá aðeins lengri tíma, því ég náði ekki fara eins vel yfir prófið og ég hefði viljað.
Á laugardagskvöldið var svo próflokapartý og við Jói létum sjá okkur. Það var mjög gaman og bollan sem Siggi bar fram var hreint lostæti :) Sem betur fer ekki mjög sterk, því þá hefði litli hænuhausinn ég líklega verið á hausnum ;)

Siggi og Óli að missa sig í gleðinni :)



Egill,Matthildur,Siggi og Óli. Skemmtilegur hópur þarna á ferð :)







Á sunnudaginn fórum við Jói, Aría og Káta upp í sveit að kíkja á hestana :)
Þetta var yndislegur dagur í góðu veðri. Við rákum Heru mína inn í hesthús og settum á hana tökumúl og bundum við hesthúsinréttinguna. Hún togaði vel í fyrst, en sætti sig svo við þetta og leyfði mér að snurfussa sig aðeins. Fekk meira að segja að strjúka niður lappirnar á henni :)
Ég knúsaði Náttfara og Freyju og Aría og Káta skemmtu sér konunglega, sérstaklega þegar þær komust í rotþróna frá fjósinu. Úff getið þið ímyndað ykkur lyktina????!!!!!! hún var SKELFILEG!!. Við náðum að skola aðeins af þeim með vatnsslöngu en keyrðum heim með opna glugga og svo var farið beint í bað við heimkomu.

Aðeins hafði einu sinni áður verið settur múll á hana Heru mína og það gekk alveg jafn vel í þetta skiptið :)



Múllinn kominn á og ekkert mál :)



En þegar hún fattaði að hún var bundin, var reynt á mátt bandsins. Hún að vísu sleit minna band þannig að við notuðum sterkari kaðall.



Hún róaði sig fljótt og hér sjáið þið þessa stórglæsilegu skvísu. Stolt úr minni eigin ræktun :) Hún er þriggja vetra undan Glampa frá Vatnsleysu og Kráku frá Bólstað.



Að sjálfsögðu varð ég líka að knúsa hann Náttfara minn þar sem hann lá og var að hvíla sig.



Náttfari var alveg til í smá knús :)




Ég elska þennann hest svo ofsalega mikið :)



Káta í blómahafi :)



Aría að heilsa upp á Náttfara vin sinn :)



Freyja mín :)



Freyja og Hera



Týri ( yndislegi hundurinn á bænum) og Káta.



Aría og Káta eftir rotþróna



Lyktin var ógeðsleg !!!


Tíminn á milli laugardags og dagsins í dag var ofsalega lengi að líða því í dag áttum við að fá að vita hvort við náðum prófinu eður ei. Í hvert skipti sem síminn lét heyra í sér kipptist ég við. Við áttum að fá sms ef við náðum, en hringingu ef við náðum ekki.
Við Jói vorum í labbitúr um hverfið með hundana þegar ég leit á símann, og ÉG FEKK SMS :)
Ég bókstaflega hoppaði hæð mína í loft upp af kæti. ég hef aldrei útskrifast sem neitt áður og ég er ekkert smá ánægð með þetta :)

Skrifað 24.6.2009 kl. 22:46 af Svandís.

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 5
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 625
Samtals gestir: 265
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 04:26:53